71. stjórnarfundur Skólaskrifstofu Suðurlands
haldinn að Austurvegi 56, Selfossi, miðvikudaginn 25. febrúar 2004 kl. 16:00.
Mættir: Ásmundur Sverrir Pálsson, Margeir Ingólfsson, Eyja Þóra Einarsdóttir og Herdís Þórðardóttir.
Aðrir: Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, Katrín Þ Andrésdóttir (KS), Rut Guðmundsdóttir (Skólastjórafél. Suðurlands), Hannes Stefánsson (FÁS) og Lísbeth Nílsdóttir (FL). Einnig sat fundinn Þorvarður Hjaltason framkv.stjóri SASS undir 1. lið.
Karl Pálmason boðaði forföll.
Fundargerð ritaði Kristín Hreinsdóttir.
Formaður setti fundinn og lagði fram tillögu um breytingu á dagskrá. Samþykkt.
1. Ársreikningur 2003.
Framkvæmdastjóri SASS kynnti ársreikning 2003. Rekstrarhagnaður Skólaskrifstofu Suðurlands var 3.880.218 kr.
Þorvarður fór af fundi kl. 16:10.
2. Breyting á reglugerð um sérfræðiþjónustu nr. 386/1996.
Forstöðumaður kynnti breytingu á reglugerð um sérfræðiþjónustu. Í henni er skólaskrifstofum gert skylt að sjá grunnskólum fyrir skimunar- og greiningartækjum og skólum gert skylt að gera lestrarskimanir reglulega fyrstu ár grunnskólagöngu nemenda.
Forstöðumaður greindi frá því að send hefði verið út könnun til grunnskóla um hvernig skimað væri í skólunum í dag og eru svör byrjuð að berast. Einnig var spurt að því hvernig þeir sæju fyrir sér að skimanir yrðu leystar í framtíðinni.
Umræður urðu um hugsanlegan kostnaðarauka sem af þessu getur hlotist.
3. Drög að samningi við Fjölbrautaskóla Suðurlands um aðgang að gagnasafni.
Forstöðumaður kynnti drög að samningi um gagnasafn Skólaskrifstofu Suðurlands milli Fjölbrautaskóla Suðurlands og Skólaskrifstofu Suðurlands. Forstöðumanni falið að ganga frá samningnum skv. drögum.
4. Kynning á stefnu og starfi leikskólans Álfheima í umhverfismálum.
Lísbet Nílsdóttir kynnti stefnu leikskólans Álfheima á Selfossi, en leikskólinn hefur markað sér stefnu sem útileikskóli og vistvænn leikskóli og er að vinna þróunarverkefni á því sviði. Skýrsla um verkefnið kemur út í haust.
5. Kynning á þróunarverkefninu Bright Start.
Forstöðumaður kynnti þróunarverkefnið Bright Start. Þrír aðilar standa að verkefninu, en það eru Hvolsskóli, Laugalandsskóli og Skólaskrifstofa Suðurlands. Markmið Bright Start er m.a. að jafna stöðu barna til náms óháð félagslegri-, menningarlegri og námslegri færni, auka námsárangur og draga úr þörf á sérkennslu.
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundi slitið kl. 18:15.
Ásmundur Sverrir Pálsson
Herdís Þórðardóttir
Hannes Stefánsson
Rut Guðmundsdóttir
Katrín Þ. Andrésdóttir
Margeir Ingólfsson
Lísbet Nílsdóttir
Eyja Þóra Einarsdóttir
Kristín Hreinsdóttir
