57. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands

57. fundur stjórnar Skólaskrifstofu Suðurlands

haldinn að Austurvegi 56, Selfossi, 26. ágúst 2002, kl. 16:15.

Mætt: Gunnar Þorgeirsson, Svanhvít Sveinsdóttir, Sigríður Sveinsdóttir, Stefán Guðmundsson og Ingimundur Sigurmundsson.

Aðrir: Kristín Hreinsdóttir forstöðumaður, Ásthildur Bjarnadóttir (FL) og Hannes Stefánsson (FÁS).

Einnig kom til fundarins Þorvarður Hjaltason undir 2. lið.

Arndís Harpa Einarsdóttir (Skólastjórafélagið) og Hilmar Björgvinsson (KS) boðuðu forföll.

Formaður setti fundinn og bauð fundarmenn velkomna.

1. Endurskoðun stofnsamnings.

Formaður kynnti tvær tillögur að breytingu á stofnsamningi Skólaskrifstofu Suðurlands. Samþykkt að leggja fram drög að breytingum stofnsamnings skv. tillögu 2 með áorðnum breytingum fyrir aðalfund SASS 30.-31. ágúst 2002.

2. Staða samkvæmt fjárhagsáætlun 2002 – fjárhagsáætlun 2003.

Þorvarður Hjaltason framkvæmdastjóri SASS kynnti stöðuna skv. fjárhagsáætlun 2002 og fjárhagsáætlun 2003.

Fjárhagsáætlun 2002 virðist ætla að standast.

Fjárhagsáætlun 2003 hljóðar upp á tæplega 10% hækkun eða 49.445.000 kr. Þorvarður fór af fundi kl. 18:00.

3. Ársskýrsla 2001-2002.

Forstöðumaður kynnti ársskýrslu 2001-2002.

Stjórnin þakkar forstöðumanni greinargóða ársskýrslu.

Hannes Stefánsson fór af fundi kl. 18:10.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:30.

Gunnar Þorgeirsson Stefán Guðmundsson

Sigríður Sveinsdóttir Ásthildur Bjarnadóttir

Ingimundur Sigurmundsson Kristín Hreinsdóttir

Svanhvít Sveinsdóttir