
| 8.3.2010 Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2009-10 Stærðfræðikeppni grunnskóla á Suðurlandi 2009-2010 verður haldin í Fjölbrautaskóla Suðurlands miðvikudaginn 10. mars nk. kl. 16:00. Keppendur þurfa að mæta kl. 15:30. Mæting er í mötuneytinu austast í húsinu á 1. hæð. Þar tekur Ólafur Bjarnason deildarstjóri í stærðfræði á móti keppendum, keppendur fá veitingar og verður vísað í stofu. Lesa meira... |
| 22.2.2010 ART á Suðurlandi hefur opnað nýja vefsíðu Vefsíða Art verkefnisins hefur fengið nýja slóð, www.isart.is. Netföng starfsmanna breytast samhliða þannig: Bjarni Bjarnason, verkefnisstjóri ART á Suðurlandi: bjarni@isart.is. Sigríður Þorsteinsdóttir, ART þjálfari: sigridur@isart.is Inga Margrét Skúladóttir, ART þjálfari: inga@isart.is |
| 19.2.2010 Lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi 2009-2010 Lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar á Suðurlandi verða: Svæði 1: Árborg og Hveragerði (Sunnulækjarskóli, Vallaskóli, Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri og Grunnskólinn í Hveragerði) mánudaginn 15. mars kl. 15:00 á Stað á Eyrarbakka. Svæði 2: Rangárvalla- og V-Skaftafellssýsla (Kirkjubæjarskóli, Víkurskóli, Hvolsskóli, Grunnskólinn á Hellu og Laugalandsskóli) fimmtudaginn 18. mars kl. 15:00 á Laugalandi í Holtum. Svæði 3: Uppsveitir Árnessýslu og Flói (Flúðaskóli, Þjórsárskóli, Grunnskóli Bláskógabyggðar, Grunnskólinn Ljósaborg og Flóaskóli) miðvikudagurinn 17. mars kl. 15:00 í Félagslundi í Flóa. Lesa meira... |
| 27.1.2010 Lesið til skilnings: námsefni í læsi Hægt er að sækja inn á vef Námsgagnastofnunar námsefni og kennsluleiðbeiningar í læsi fyrir nemendur á öllum aldri í grunnskólanum. Skv. læsiskýrslunni sem kom út sl. sumar er þessum þætti almennt ekki sinnt nægjanlega vel, sérstaklega eftir að tæknilestri hefur verið náð eða ætti að hafa verið náð. Hægt er að sækja á pdf formi: - Æfingahefti fyrir nemendur - Kennsluleiðbeiningar ![]() Lesa meira... |

